mán. 6. maí 2024 21:32
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út í kvöld.
Þyrlan kölluð út vegna vinnuslyss

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti mann sem slasaðist við vinnu í Grundarfirði í kvöld. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.

Féll maðurinn um þrjá metra. 

Útkallið barst um klukkan hálfátta í kvöld og flaug þyrlan til móts við sjúkrabíl til að sækja manninn.

Þyrlan lenti um klukkan níu við sjúkrahúsið í Fossvogi.

til baka