Harry Bretaprins verður á ferð og flugi á næstunni en auk þess að vera á leiðinni til Lundúna í byrjun maí hefur hann þáð boð til Nígeríu. Eiginkona hans, Meghan hertogaynja, mun fara með honum til Nígeríu.
Ferðin til Nígeríu er í boði hernaðaryfirvalda þar í landi að því fram kemur á vef Hello. Harry kynntist yfirmanni hjá hernum á Invictus-leikunum í Þýskalandi í fyrra. Leikarnir eru hugarfóstur Harrys en þeir eru fyrir fyrrverandi hermenn sem hafa særst í átökum. Eru hjónin sögð hafa varið miklum tíma með liðinu frá Nígeríu þar sem Meghan á ættir að rekja til Nígeríu.
Áður en að Harry fer til Nígeríu fer hann til Lundúna í byrjun maí til þess að vera viðstaddur athöfn í tilefni tíu ára afmælis Invictus-leikanna. Mun þetta vera fyrsta ferð Harrys til Bretlands síðan í febrúar. Hann heimsótti Bretland í sólahring í kjölfar þess að faðir hans, Karl konungur, greindist með krabbamein.
Talsmaður prinsins vildi ekki tjá sig um hvort Meghan færi með Harry til Bretlands í maí. Meghan var síðast í Bretlandi árið 2022 þegar hún var viðstödd jarðarför drottningarinnar. Hún mætti ekki í krýningu Karls á síðasta ári. Hefur Karl konungur til að mynd aldrei hitt yngra barn þeirra.