Stjörnuspá sun. 19. maí. 2024

Stjörnuspá
sun. 19. maí. 2024

21. mars - 19. apríl

Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.

20. apríl - 20. maí

Það er nauðsynlegt að þú getir greint á milli staðreyndar og staðleysu og sért snöggur að því. Það er farsælla að velta hlutunum fyrir sér heldur en að bregðast strax við.

21. maí - 20. júní

Stundum getur eitthvað sem sagt er reynt verulega á vináttuna. Hafðu taumhald á skapi þínu.

21. júní - 22. júlí

Ekki eyða tímanum í að reyna að sannfæra einhvern um að hann hafi rangt fyrir sér. Líttu í eigin barm og skoðaðu málin í rólegheitunum.

23. júlí - 22. ágúst

Endinn skyldi í upphafi skoða. Þú hefur vogað miklu í sambandi við ákveðna manneskju, sem stendur ekki undir trausti þínu.

23. ágúst - 22. september

Rétta lausnin er ekki endilega sú sem liggur í augum uppi. Að binda trúss sitt við ranga fólkið getur leitt til þess að framfarir stöðvist. Vertu raunsær.

Vog
23. september - 22. október

Þú ert tilbúinn til að leggja hart að þér í dag og jafnvel til í að takast á við verkefni sem þú hefur lengi ýtt á undan þér. Einbeittur þér að því að gera það sem þú gerir best.

23. október - 21. nóvember

Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Þú þarft að vera viðbúinn því að þurfa að taka þátt í umræðum til þess að koma skoðunum þínum á framfæri.

22. nóvember - 21. desember

Vertu óhræddur við að segja hug þinn því þá munu aðrir taka mark á þér. Hlustaðu samt á það sem aðrir hafa að segja áður en þú lætur álit þitt í ljós.

22. desember - 19. janúar

Neikvæðni er viðhorf sem sýgur ánægjuna úr líðandi stundu. Sýndu samúð til að eiga góða stund með fjölskyldunni í kvöld.

20. janúar - 18. febrúar

Þú þarft að stinga við fótum og standa fast á þínu máli þótt að þér sé sótt úr öllum áttum. Einhver spennandi skýtur upp kollinum, endurskipuleggur allt og hverfur svo á braut.

19. febrúar - 20. mars

Þér finnst eins og einhver sé að leggja stein í götu þína. Þú stendur á tímamótum og ættir ekki að líta um öxl. Sjálfstraust þitt er í besta lagi.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og