Það er enginn vafi á því að bandaríska leikkonan Demi Moore hafi fundið æskubrunninn. Moore, sem er 61 árs gömul, lítur stórkostlega út í myndskeiði sem hún birti á Instagram-reikningi sínum á þriðjudag. Leikkonan er stödd í fríi ásamt fjölskyldu sinni.
Moore, hvað þekktust fyrir hlutverk sín í kvikmyndum á borð við Ghost, A Few Good Men og Charlie's Angels: Full Throttle, sólaði sig á ströndinni ásamt dætrum sínum, barnabarni, vinum og hundi.
Leikkonan klæddist bikiníi með hlébarðamynstri og leit alls ekki út fyrir að vera mikið eldri en dætur hennar, sem eru á aldursbilinu 30 til 35 ára.
Aðdáendur Moore voru margir hverjir agndofa yfir unglegu útliti hennar og sögðu hana búa yfir einhvers konar töfrum.