Þau sem hafa rekið útimarkaðinn Mosskóga í Mosfellsdal hafa ákveðið að hætta starfseminni en þar hefur verið hægt að kaupa varning frá ræktendum og framleiðendum í nágrenninu.
Á grænmetismarkaðnum hefur verið hægt kaupa lífrænt ræktað grænmeti og ber, heimagerðar sultur og mauk, nýbakað brauð, silung frá Heiðabæ og rósir frá Dalsgarði.
Frá þessu er greint á Facebook-siðunni Mosskógar Camping Iceland en þar segir meðal annars:
„Kæru vinir með þessum pósti viljum við Nonni láta ykkur vita að grænmetis markaðurinn góði verður ekki í sumar. Eftir 30 góð ár í frábærri samvinnu og gleði með góðu fólki sem hefur tekið þátt í þessu ævintýri og frábærum gestum sem komið hafa til okkar öll sumur, þá hefur Nonni ákveðið að nú sé tímabært að hætta.“