Lögreglan rannsakar andlátið á Litla-Hrauni

Frá Litla-Hrauni.
Frá Litla-Hrauni. mbl.is/Árni Sæberg

Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir í samtali við mbl.is að vistmaður hafi fundist látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni í gærmorgun.

Félagið Afstaða sendi í morgun frá sér tilkynningu vegna andlátsins. 

Páll segir að ekkert bendi til að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti en maðurinn var fæddur árið 1992.

Hann segir að lögreglan á Suðurlandi fari með rannsókn málsins en hann vilji að öðru leyti ekki tjá sig frekar um það að svo stöddu.

Litla-Hraun.
Litla-Hraun. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert