Við Njálsgötu í miðbæ Reykjavíkur er að finna bjarta 171 fm íbúð ásamt glæsilegu hönnunarsmáhýsi á baklóð sem telur 27 fm. Íbúðin er á tveimur efstu hæðum þríbýlishúss sem reist var árið 1940.
Íbúðin sjálf er björt og skemmtilega skipulögð með góðri lofthæð, en í holi á neðri hæð er allt að fimm metra lofthæð.
Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi og þar nær lofthæðin mest þremur metrum. Þar af eru þrjú rúmgóð herbergi með fallegri tvöfaldri opnanlegri hurð út á franskar svalir, en herbergin snúa í suður og veita glæsilegt útsýni.
Á baklóðinni er að finna hönnunarsmáhýsi sem hefur verið innréttað á glæsilegan máta. Í húsinu er stílhreint eldhús ásamt rúmgóðri stofu sem nýtist einnig sem svefnrými þar sem bekkir eru með útdraganlegu tvíbreiðu rúmi.
Sjarmerandi sjónsteypa prýðir veggina og gefur rýminu mikinn karakter, en hún tónar fallega við gegnheila eik á gólfum og viðartóna í innréttingum og húsmunum.