Dráttarbátnum Gretti Sterka var fylgt til hafnar í Vestmannaeyjum í nótt eftir að báturinn tók inn á sig sjó vegna bilunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni (LHG).
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út vegna dráttarbátsins, sem var staðsettur suðaustur af Vík, á tíunda tímanum í gærkvöldi.
Grettir Sterki siglir undir færeyskum fána og voru fimm um borð í bátnum í gærkvöldi.
Áhöfnin hafði samband við stjórnstöð LHG í kjölfar bilunarinnar.
Í tilkynningunni segir að GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, og björgunarskipið Þór, frá Vestmannaeyjum, héldu til móts við dráttarbátinn sem tók stefnuna til Eyja þegar bilunarinnar var vart. Þá var dráttarbáturinn Lóðsinn frá Vestmannaeyjum einnig beðinn um að halda á vettvang.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var komin að dráttarbátnum um klukkan 23:30 og fóru tveir sigmenn þyrlunnar um borð í dráttarbátinn með sjódælur og hófu að dæla sjó úr bátnum.
Sigmennirnir urðu eftir í dráttarbátnum meðan þyrlan hélt til Vestmannaeyja til að taka eldsneyti.
Þá var björgunarskipið Þór komið á vettvang um klukkan 00:30 og flutti fleiri dælur um borð.
Tilkynning LHG var send út rétt fyrir klukkan eitt í nótt og þá voru sigmenn þyrlunnar enn um borð í dráttarbátnum og gekk vel að dæla sjó úr honum.
Gert var ráð fyrir að Lóðsinn yrði kominn á vettvang um klukkan þrjú í nótt myndi fylgja dráttarbátnum til hafnar í Vestmannaeyjum.
Samkvæmt upplýsingum á vefnum Marinetraffic er Grettir Sterki nú í Vestmannaeyjarhöfn.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 17.5.24 | 415,38 kr/kg |
Þorskur, slægður | 17.5.24 | 510,68 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 17.5.24 | 395,54 kr/kg |
Ýsa, slægð | 17.5.24 | 265,68 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 17.5.24 | 127,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 17.5.24 | 194,59 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.5.24 | 313,00 kr/kg |
Gullkarfi | 17.5.24 | 177,58 kr/kg |
Litli karfi | 15.5.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 6.5.24 | 150,00 kr/kg |
18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.962 kg |
Ýsa | 1.338 kg |
Steinbítur | 561 kg |
Keila | 136 kg |
Karfi | 4 kg |
Hlýri | 4 kg |
Samtals | 7.005 kg |
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 5.212 kg |
Þorskur | 633 kg |
Ýsa | 575 kg |
Samtals | 6.420 kg |
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 117 kg |
Ufsi | 15 kg |
Samtals | 132 kg |
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 192 kg |
Samtals | 192 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 17.5.24 | 415,38 kr/kg |
Þorskur, slægður | 17.5.24 | 510,68 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 17.5.24 | 395,54 kr/kg |
Ýsa, slægð | 17.5.24 | 265,68 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 17.5.24 | 127,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 17.5.24 | 194,59 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.5.24 | 313,00 kr/kg |
Gullkarfi | 17.5.24 | 177,58 kr/kg |
Litli karfi | 15.5.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 6.5.24 | 150,00 kr/kg |
18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.962 kg |
Ýsa | 1.338 kg |
Steinbítur | 561 kg |
Keila | 136 kg |
Karfi | 4 kg |
Hlýri | 4 kg |
Samtals | 7.005 kg |
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 5.212 kg |
Þorskur | 633 kg |
Ýsa | 575 kg |
Samtals | 6.420 kg |
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 117 kg |
Ufsi | 15 kg |
Samtals | 132 kg |
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 192 kg |
Samtals | 192 kg |