Áfall fyrir United

Harry Maguire verður frá í þrjár vikur.
Harry Maguire verður frá í þrjár vikur. AFP/Oli Scarff

Enski knattspyrnumaðurinn Harry Maguire, miðvörður Manchester United, er meiddur og gæti tímabili hans því verið lokið.

Sky Sports greinir frá því að Maguire sé að glíma við vöðvameiðsli og verði af þeim sökum frá keppni um þriggja vikna skeið.

Man. United á eftir að spila fjóra leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu áður en liðið leikur við nágranna sína og erkifjendur í Manchester City í úrslitum ensku bikarkeppninnar eftir tæplega þrjár vikur, þann 25. maí.

Maguire er því í kappi við tímann að ná sér í tæka tíð fyrir úrslitaleikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert