„Mér þykir þetta mjög leitt“

David Moyes segir sínum mönnum til.
David Moyes segir sínum mönnum til. AFP/Ben Stansall

David Moyes, knattspyrnustjóri West Ham United, bað stuðningsmenn liðsins afsökunar eftir 5:0-tap fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær.

„Stuðningsmennirnir hafa verið frábærir en ég finn til með þeim. Liðin mín tapa venjulega ekki svona illa en okkur vantar ýmislegt, það er andlegan styrk og leiðtogahæfileika til þess að ná í betri úrslit, eða í það minnsta ekki tapa stórt.

Stuðningsmennirnir skiluðu sínu og ég get einungis sagt að mér þykir það mjög leitt hvernig þessi leikur þróaðist,“ sagði Moyes í samtali við Sky Sports eftir leikinn í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert