Valdi West Ham fram yfir Bayern

Julen Lopetegui mun taka við West Ham United.
Julen Lopetegui mun taka við West Ham United. AFP/Adrian Dennis

Spánverjinn Julen Lopetegui hefur samþykkt að taka við sem knattspyrnustjóri West Ham United í sumar.

The Athletic greinir frá því að Lopetegui, sem síðast stýrði Wolverhampton Wanderers, hafi veitt munnlegt samþykki við því að taka við Hömrunum af David Moyes þegar samningur þess síðarnefnda rennur út í sumar.

Þýska stórveldið Bayern München spurðist fyrir um Lopetegui í dag en samkvæmt The Athletic vill hann halda kyrru fyrir á Englandi og mun skrifa undir samning við Lundúnafélagið áður en langt um líður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert