Fram er komið í þriðja sæti Bestu deildar karla í knattspyrnu eftir sigur á Fylki, 2:1, í Úlfarsárdal í kvöld.
Fram er með tíu stig í þriðja sæti. Fylkir er hins vegar í tólfta og neðsta sæti deildarinnar með eitt stig.
Fylkismenn komust yfir á 30. mínútu leiksins. Þá fór skot Halldórs Jóns Sigurðar Halldórssonar, sem stefndi á fjærstöngina, af Framaranum Adam Erni Arnarsyni og rúllaði í nærhornið, 1:0.
Aðeins þremur mínútum síðar fékk Fram víti. Þá braut Ásgeir Eyþórsson á Tiago Fernandes inn í teig og Ívar Orri Kristjánsson dómari benti á punktinn.
Guðmundur Magnússon steig á hann en Ólafur Kristófer Helgason varði frá honum.
Fram var ekki lengi að svara fyrir það en á 37. mínútu jafnaði Haraldur Einar Ásgrímsson metin með því að vippa yfir Ólaf í markinu, 1:1.
Guðmundur jafnaði sig á vítaklúðrinu og kom Framurum yfir tveimur mínútum síðar með skalla eftir fyrirgjöf frá Tiago, 2:1.
Fátt gerðist í síðari hálfleik og urðu þar með lokatölur 2:1 Fram í vil.
Fram heimsækir Stjörnuna í næstu umferð en Fylkir fær Breiðablik í heimsókn.