Að seljast upp á stórleikinn

Leikmenn Breiðabliks fagna marki í síðasta mánuði.
Leikmenn Breiðabliks fagna marki í síðasta mánuði. mbl.is/Árni Sæberg

Breiðablik og Valur etja kappi í stórleik fimmtu umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu klukkan 19.15 í kvöld.

Mikill áhugi er fyrir leiknum þar sem uppselt er í þann hluta nýrri stúkunnar á Kópavogsvelli sem Blikar sitja í.

Enn er hægt að kaupa miða í gestahólf, þar sem stuðningsmenn Vals verða, og þá ákvað Breiðablik að opna gömlu stúkuna, þar sem 157 miðar eru eftir þegar þetta er ritað.

Miðasala fer fram á Stubbi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert