Samdi við HK til tveggja ára

Kári Tómas Hauksson, númer 8, í leik með HK gegn …
Kári Tómas Hauksson, númer 8, í leik með HK gegn Selfossi í vetur. mbl.is/Arnþór Birkisson

HK hefur samið að nýju við handknattleiksmanninn Kára Tómas Hauksson um að leika með félaginu næstu tvö árin.

Kári Tómas er 22 ára gamall, leikur sem skytta hægra megin og spilaði alla 22 leiki liðsins í úrvalsdeildinni í vetur þar sem hann skoraði 72 mörk. Hann var þriðji markahæsti leikmaður HK.  

Kári er uppalinn hjá Kópavogsfélaginu sem hélt sæti sínu í deildinni í vetur og leikur því þar áfram á næsta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert