Hallgrímur Brynjólfsson hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna í körfubolta hjá Fjölni.
Hallgrímur óskaði sjálfur eftir því að losna undan samningi við félagið en Fjölnir lenti í 8. sæti í úrvalsdeild.
Hallgrímur tók við liðinu af Kristjönu Eir Jónsdóttur fyrir yfirstandandi tímabil. Fyrir það þjálfaði hann Hamar-Þór í 1. deild en hann hefur einnig þjálfað Njarðvík Hamar og yngri landslið Íslands.